Inter vann ótrúlegan endurkomusigur á Udinese í kvöld þar sem Davide Frattesi skoraði sigurmarkið seint í uppbótatíma.
Inter er með 14 stiga forystu á toppi deildarinnar og er komið í ansi góða stöðu. Udinese er hins vegar aðeins tveimur stigum frá fallsæti.
Simone Inzaghi stjóri Inter fann til með Udinese.
„Ég vil óska Udinese til hamingju, þeir spiluðu frábærlega og að tapa svona er pirrandi. Við unnum mikilvægan leik í ferðalaginu okkar. Sem betur fer lendum við ekki oft undir, strákarnir voru frábærir," sagði Inzaghi.
Athugasemdir