Man Utd og Arsenal vilja Guehi - Osimhen gæti farið til Chelsea eða PSG - Geertruida gæti fylgt Slot til Liverpool
banner
   mán 08. apríl 2024 21:51
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Ronaldo brást illa við þegar hann fékk rautt - Al-Nassr úr leik í Ofurbikarnum
Mynd: Getty Images

Cristiano Ronaldo átti erfitt kvöld þegar Al-Nassr féll úr leik í sádí arabíska Ofurbikarnum í kvöld gegn Al-Hilal í undanúrslitunum.


Otavio skoraði fyrir Al-Nassr í uppbótatíma í fyrri hálfleik en markið var dæmt af þar sem dómarinn taldi Ronaldo hafa áhrif á sóknina þegar hann var í rangstöðu.

Al-Hilal náði tveggja marka forystu áður en Ronaldo var rekinn af velli undir lok leiksins þegar hann setti olnbogann í bringuna á leikmanni Al-Hilal þegar hann truflaði Ronaldo við að taka innkast.

Eftir að dómarinn lyfti upp rauða spjaldinu virtist Ronaldo hóta því að berja hann. Þegar hann svo gekk af velli bað hann stuðningsmenn liðsins kaldhæðnislega að klappa fyrir dómaranum.

Al-Hilal mætir mætir Al-Ittihad í úrslitum en Karim Benzema kom liðinu yfir í 2-1 sigri á Al-Wehda.

Sjáðu viðbrögð Ronaldo við rauða spjaldinu



Athugasemdir
banner
banner