Man Utd og Arsenal vilja Guehi - Osimhen gæti farið til Chelsea eða PSG - Geertruida gæti fylgt Slot til Liverpool
   þri 09. apríl 2024 07:30
Jóhann Þór Hólmgrímsson
„Man ekki hvenær ég spilaði síðast verkjalaus"
Mynd: EPA

Gabriel Jesus framherji Arsenal hefur verið ansi óheppinn með meiðsli að undanförnu en hann segist vera nálgast sitt besta form.


Þessi 27 ára gamli Brasilíumaður meiddist á HM 2022 á hné og hefur verið í miklum vandræðum síðan. Hann hefur verið að kljást við meiðsli á þessari leiktíð en hefur nú komið við sögu í þremur af síðustu fjórum leikjum Arsenal í úrvalsdeildinni.

Arsenal fær Bayern Munchen í heimsókn í átta liða úrslit Meistaradeildarinnar í kvöld og Jesus er til í slaginn.

„Ég man ekki hvenær ég spilaði fótbolta síðast verkjalaus svo ég get ekki kvartað. Ég er að reyna að vera klár. Ég vil persónulega ekki ræða formið mitt. Eftir HM meiddist ég á hné og náði góðum bata en þá kom bakslag á undirbúningstímabilinu," sagði Jesus.


Athugasemdir
banner
banner
banner