Real Madrid er óvænt að skoða möguleikann á því að reyna við Kobbie Mainoo leikmann Manchester United í sumar. Frá þessu greina spænskir miðlar.
Mainoo hefur skotist upp á stjörnuhimininn í vetur með frábærum frammistöðum inn á miðunni hjá United. Mainoo er átján ára Englendingur sem hefur skorað þrjú mörk fyrir United í vetur.
Mainoo hefur skotist upp á stjörnuhimininn í vetur með frábærum frammistöðum inn á miðunni hjá United. Mainoo er átján ára Englendingur sem hefur skorað þrjú mörk fyrir United í vetur.
Mainoo skoraði sitt fyrsta mark á Old Trafford gegn Liverpool á sunnudag og var það af dýrarig gerðinni.
Real Madrid gæti þurft að fylla skörðin sem Luka Modric og Toni Kroos munu skilja eftir sig á næstunni en innan herbúða félagsins eru þó nokkrir kostir. Jude Bellingham, Eduardo Camavinga, Aurelien Tchouameni og Federico Valverde eru þar á meðal.
Florentino Perez, forseti Real Madrid, á, ef marka má fréttaflutning frá Spáni, að finnast möguleikinn á því að fá Mainoo til Real vera mjög áhugaverður.
Athugasemdir