Man Utd skoðar það að fá Tuchel - Postecoglou fær fjármagn í sumar - Greenwood eftirstóttur á Englandi
   lau 28. maí 2016 08:30
Jóhann Ingi Hafþórsson
Simeone: Elska pressuna sem fylgir úrslitaleikjum
Diego Simeone er grjótharður.
Diego Simeone er grjótharður.
Mynd: Getty Images
Diego Simeone, þjálfari Atletico Madrid segist elska pressuna sem fylgir því að spila úrslitaleiki en liðið spilar gegn Real Madrid í úrslitaleik Meistaradeildarinnar en leikið er í Milan.

Atletico á harma að hefna eftir tap gegn sömu andstæðingum í sama leik fyrir tveimur árum en liðið hefur aldrei orðið evrópumeistari.

„Mig líkar vel við að vera með 113 ára sögu á bakinu," sagði hann. „Ég elska það, ég elska pressuna sem fylgir úrslitaleikjum."

„Hver sem vinnur baráttuna snemma leiks hefur yfirhöndina. Real eru mjög teknískir og gætu reynt að spila meira."

Leikurinn hefst kl 18:45 og er í opinni dagskrá á Stöð 2 Sport.
Athugasemdir
banner
banner
banner