Kenny Dalglish stjóri Liverpool virðist vera að rétta við gengi liðsins en liðið hefur unnið tvo leiki í röð í deildinni.
Liðið er nú í sjöunda sæti og lítur betur út en undir stjórn Roy Hodgson.
Liðið er nú í sjöunda sæti og lítur betur út en undir stjórn Roy Hodgson.
,,Ég tel okkur betri en taflan segir en hlutirnir líta betur út," sagði Dalglish .
,,Við förum ekki fram úr okkur, við erum í sjöunda sæti og þar vill þetta félag ekki vera. Við viljum vera hærra í töflunni."
,,Við verðum að vinna fleiri leiki og þeir munu rena það, byrjum á Stoke næsta miðvikudag."
,,Fulham munu hugsa að þeir hafi átt meira skilið en það hafa verið margir leikir þar sem við höfum átt meira skilið.."