Nýr Höddi Magg fundinn?
FH-ingar hafa ekki átt markahæsta mann efstu deildar síðan Hörður Magnússon lék í treyju númer 9 en það kann að breytast á næstu árum.
Atli Guðnason er ungur drengur í liði FH sem hefur ef til vill afrekað eitthvað um helgina sem fáir ef einhver hefur áður afrekað, að skora tvær þrennum á einni helgi í leik á vegum KSI.
Atli kom inná í leik Ægis og FH fyrir Allan Borgvardt á 60 mínútu og skoraði þrennu og var eitt mark dæmt af sem hann skoraði!
Í dag lék Atli svo með u-23 liði FH gegn val og skoraði hann einnig þrennu í leik sem fór 6-1 fyrir FH-inga.
Athyglisverður leikmaður sem gaman verður að fylgjast með, Ólafur Jóhannesson hefur allavega ástæðu til að hugsa vel um þennan unga dreng.




