Arianna Romero og Crystal Thomas verða ekki áfram í herbúðum Vals á næsta tímabili.
Arianna er varnarmaður frá Mexíkó en hún hefur áður leikið með ÍBV hér á landi.
Crystal er bandarískur sóknarmaður en hún kom til Vals síðastliðið vor líkt og Arianna.
Crystal skoraði fimm mörk í átján leikjum í Pepsi-deildinni síðastliðið sumar en Arianna spilaði sautján leiki.
Valur hefur í vetur fengið fjóra nýja leikmenn en það eru Ásgerður Stefanía Baldursdóttir frá Val, Bergdís Fanney Einarsdóttir frá ÍA, Guðný Árnadóttir frá FH og Lillý Rut Hlynsdóttir frá Þór/KA.
Athugasemdir