Mirror segir að Arsenal sé að ná samkomulagi við Barcelona um að fá Denis Suarez lánaðan út tímabilið.
Arsenal mun borga 1,7 milljón punda fyrir lánið og félagið er svo tilbúið að greiða 17,5 milljónir punda til að fá leikmanninn alfarið í sumar, ef hann stendur sig í Norður-London.
Arsenal mun borga 1,7 milljón punda fyrir lánið og félagið er svo tilbúið að greiða 17,5 milljónir punda til að fá leikmanninn alfarið í sumar, ef hann stendur sig í Norður-London.
Arsenal hefur unnið að því allan janúarmánuð að fá Suarez og Spánverjinn vill fara til félagsins.
Unai Emery, stjóri Arsenal, sagði fyrr í þessum mánuði að Arsenal væri ekki með pening til að kaupa leikmenn í glugganum og myndi í staðinn gera hosur sínar grænar á lánsmarkaðnum.
Viðræður við Barcelona hafa verið strembnar en hjá Arsenal eru menn sagðir bjartsýnir á að krækja í Suarez sem hefur verið í aukahlutverki hjá Börsungum.
Athugasemdir