Linda Líf Boama og Þróttur hafa framlengt samning sín á milli til loka keppnistímabilsins 2021.
Hin 18 ára gamla Linda skoraði 22 mörk þegar Þróttur vann Inkasso-deildina í sumar en hún var valin efnilegust í deildinni í vali þjálfara og fyrirliða.
Hin 18 ára gamla Linda skoraði 22 mörk þegar Þróttur vann Inkasso-deildina í sumar en hún var valin efnilegust í deildinni í vali þjálfara og fyrirliða.
„Linda bætist þar í hóp stúlkna sem endurnýjaðir hafa verið samningar við á undanförnum dögum og er það mikill styrkur fyrir liðið að lykilleikmenn eru nú reiðubúnir til að takast á við næsta verkefni sem er Pepsi Max deildin á næsta ári," segir í fréttatilkynningu frá Þrótti.
„Við fögnum undirritun nýs samnings og hlökkum til áframhaldandi samstarfs næstu tímabil. Lifi....!"
Linda Líf er í landsliðshópi U19 sem tekur þátt í riðlakeppni EM sem fram fer hér á landi næstu dagana en fyrsti leikurinn er gegn Grikklandi á Víkingsvelli klukkan 17:00 á morgun.
Athugasemdir