Enska úrvalsdeildarfélagið Arsenal hefur boðið ítalska miðjumanninum Jorginho nýjan samning en þetta segir David Ornstein hjá Athletic.
Þessi 32 ára gamli leikmaður hefur verið frábær með Arsenal á tímabilinu.
Alls hefur hann spilað 35 leiki í öllum keppnum en verið að spila aðeins minna en á síðustu leiktíð.
Arsenal hefur aðeins tapað einum deildarleik sem hann hefur byrjað á þessari leiktíð, en framlag hans hefur ekki farið framhjá Mikel Arteta og félögum, því nú er hann með samningstilboð á borðinu.
David Ornstein hjá Athletic segir að Jorginho sé nú í viðræðum við Arsenal.
Jorginho kom til Arsenal frá Chelsea fyrir 14 milljónir punda í janúar á síðasta ári en þá gerði hann eins og hálfs árs samning með möguleika á að framlengja um ár til viðbótar.
Athugasemdir