Bayern hefur áhuga á Bruno - Man Utd ætlar að bjóða í Branthwaite - Frank og McKenna orðaðir við stjórastarfið á Old Trafford
banner
   mið 01. maí 2024 13:30
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Skýtur föstum skotum á Chelsea - „Snýst mikið um peninga"
Ian Maatsen
Ian Maatsen
Mynd: EPA

Ian Maatsen leikmaður Chelsea vonast til að vera áfram í herbúðum Dortmund þar sem hann er á láni.


Maatsen hefur staðið sig vel hjá þýska félaginu en hann skoraði m.a. glæsilegt mark í sigri liðsins á Atletico Madrid til að koma liðinu í undanúrslit Meistaradeildarinnar.

Faðir Maatsen, Edward, tjáði sig í samtali við Voetbal International um framtíð sonar síns.

„Maatsen er að þróa sinn leik vel hérna og það er ekki að ganga vel hjá Chelsea síðan breytingar uðru á eignarhaldi félagsins. Margt í kringum það félag snýst um peninga sem virðist skipta meira máli en annað," sagði Edward.

„Það eru fleiri möguleikar í stöðunni en Chelsea og Dortmund en Dortmund hefur verið gott nýtt upphaf. Sjáðu hvaða leikmenn hafa komið héðan, Jude Bellingham og Erling Haaland."


Athugasemdir
banner
banner
banner