Man Utd hefur áhuga á Yoro - Osimhen í forgangi hjá Chelsea - Napoli, Juve og Atletico hafa áhuga á Greenwood
   þri 30. apríl 2024 06:00
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Yfirmaður fótboltamála hjá Inter mikill aðdáandi Alberts
Mynd: Getty Images

Albert Guðmundsson leikmaður Genoa er gríðarlega eftirsóttur en ítölsku meistararnir í Inter hafa m.a. verið orðaðir við hann.


Joshua Zirkzee framherji Bologna hefur einnig verið orðaður við félagið. Piero Ausilio, yfirmaður fótboltamála hjá Inter, ræddi við ítalska miðilinn Sport Mediaset um Albert og Zirkzee.

„Ég er mikill aðdáandi þeirra beggja. Þið vitið öll mjög vel hversu erfitt það er að kaupa ákveðna leikmenn á Ítalíu. Þeir eru mjög góðir samt sem áður," sagði Ausilio.

Albert skoraði markið sem innsiglaði 3-0 sigur Genoa gegn Cagliari í gær og með sigrinum tryggði liðið sér áframhaldandi þátttöku í Seríu A á næstu leiktíð. Hann hefur skorað 14 mörk í deildinni á þessari leiktíð en aðeins fimm aðrir erlendir leikmenn hafa gert það.


Athugasemdir
banner
banner