Miðvörðurinn Arnór Gauti Úlfarsson verður áfram í herbúðum ÍR næstu tvö árin en þetta kemur fram í tilkynningu frá ÍR-ingum.
Arnór Gauti, sem er 20 ára gamall, er uppalinn í FH, en hann spilaði með ÍH og Þrótti V. áður en hann gekk í raðir ÍR-ingar á síðasta ári.
Hann og Hrafn Hallgrímsson mynduðu saman sterkt miðvarðarpar sem voru burðarstólpar í liði ÍR sem kom sér upp í Lengjudeildina í lok síðasta tímabils.
Arnór hefur nú samið um að spila með ÍR næstu tvö árin, sem er mikið fagnaðarefni fyrir Breiðhyltinga.
ÍR-ingar mæta Keflavík í 1. umferð Lengjudeildarinnar á föstudag.
Athugasemdir