Rashford, Fonseca, Moyes, Jorginho, Fati, Lenglet, Amorim, Sterling og Lukaku koma við sögu
   lau 07. september 2019 14:20
Ívan Guðjón Baldursson
Wolfsburg áfram í bikarnum - Kristianstad vann
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Sara Börk Gunnarsdóttir og stöllur í Wolfsburg eru komnar áfram í þýska bikarnum eftir 0-2 sigur gegn Berghofen.

Wolfsburg er því komið í 16-liða úrslit en félagið hefur titil að verja eftir 1-0 sigur gegn Freiburg í úrslitaleiknum í fyrra.

Berghofen 0 - 2 Wolfsburg
0-1 Pia-Sophie Wolter ('14)
0-2 Lara Dickenmann ('89)

Svava Rós Guðmundsdóttir var þá eini liðtæki Íslendingurinn hjá Kristianstad er liðið hafði betur gegn Örebro í efstu deild sænska boltans.

Svava lék allan leikinn en það var Therese Ivarsson sem gerði eina mark leiksins. Hún skoraði úr vítaspyrnu á 73. mínútu.

Kristianstad er í fjórða sæti, fjórum stigum eftir toppliði Rosengård sem á leik til góða.

Örebro 0 - 1 Kristianstad
0-1 Therese Ivarsson ('73, víti)
Athugasemdir
banner
banner