Varane, Diaz, Matip, Yamal, Davies og Rashford koma við sögu
   fös 08. mars 2024 06:00
Ívan Guðjón Baldursson
Æfingaleikir: Afturelding og Fram unnu í miklum markaleikjum
Mynd: Raggi Óla
Afturelding og Fram unnu æfingaleiki á dögunum þar sem var skorað mikið af mörkum.

Í Mosfellsbæ skoraði Afturelding sex mörk í sigri gegn Reyni Sandgerði, þar sem Andri Freyr Jónasson var atkvæðamestur með þrennu. Valgeir Árni Svansson skoraði tvö og gerði Hrannar Snær Magnússon eitt mark.

Gestirnir frá Sandgerði veittu góða mótspyrnu og skoruðu fjögur mörk, svo lokatölur urðu 6-4 í fjörugum leik.

Fram vann þá 5-0 sigur gegn Þrótti Vogum þar sem leikmenn heimamanna dreifðu mörkunum bróðurlega á milli sín.

Guðmundur Magnússon, Fred Saraiva, Aron Kári Aðalsteinsson, Jannik Pohl og Egill Otti Vilhjálmsson skoruðu mörkin.

Afturelding 6 - 4 Reynir S.
Mörk Aftureldingar:
Andri Freyr Jónasson (3)
Valgeir Árni Svansson (2)
Hrannar Snær Magnússon

Fram 5 - 0 Þróttur V.
Mörk Fram:
Guðmundur Magnússon
Fred Saraiva
Aron Kári Aðalsteinsson
Jannik Pohl
Egill Otti Vilhjálmsson
.
Athugasemdir
banner