Rashford, Fonseca, Moyes, Jorginho, Fati, Lenglet, Amorim, Sterling og Lukaku koma við sögu
   þri 09. júlí 2019 17:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Maxi Gomez er ekki á leiðinni til West Ham
Mynd: Getty Images
Maxi Gomez, sóknarmaður Celta Vigo, er ekki á leiðinni til West Ham samkvæmt heimildum Sky Sports.

West Ham bauð Celta Vigo 45 milljónir punda, sem er riftunarverð hans. Félögin komust hins vegar ekki að samkomulagi um það hvernig riftunarverðið skyldi borgað. Talið er að West Ham hafi viljað borga það í mörgum greiðslum.

Hinn 22 ára gamli Gomez er núna nálægt því að ganga í raðir Valencia, sem er tilbúið að borga og senda leikmenn í hina áttina.

West Ham er búið að selja Marko Arnautovic til Kína og er félagið í leit að sóknarmanni.
Athugasemdir
banner