Varane, Diaz, Matip, Yamal, Davies og Rashford koma við sögu
banner
   lau 10. mars 2018 10:04
Elvar Geir Magnússon
Messi dregur sig úr hópnum sem mætir Malaga
Messi er þrítugur.
Messi er þrítugur.
Mynd: Getty Images
Lionel Messi verður ekki með Barcelona gegn Malaga í dag.

Hann hefur dregið sig úr hópnum af persónulegum ástæðum.

Barcelona gefur ekki út opinberlega hver ástæðan sé en talið er að Messi verði ekki með vegna þess að eiginkona hans, Antonella, sé að fæða þeirra þriðja barn.

Messi skoraði sigurmark Barcelona í 1-0 sigri gegn Atletico Madrid um síðustu helgi.

Leikur Barcelona og Malaga hefst 19.45.
Athugasemdir
banner
banner