Rashford, Fonseca, Moyes, Jorginho, Fati, Lenglet, Amorim, Sterling og Lukaku koma við sögu
   lau 10. ágúst 2019 23:33
Brynjar Ingi Erluson
ICC-mótið: Joao Felix skoraði tvö í sigri á Juventus
Joao Felix skoraði bæði mörk Atlético
Joao Felix skoraði bæði mörk Atlético
Mynd: Getty Images
Atlético Madrid 2 - 1 Juventus
1-0 Joao Felix ('24 )
1-1 Sami Khedira ('29 )
2-1 Joao Felix ('33 )

Portúgalski táningurinn Joao Felix hefur heillað á sínu fyrsta undirbúningstímabili með Atlético Madrid en hann skoraði bæði mörk liðsins í 2-1 sigri á Juventus í ICC-æfingamótinu í kvöld.

Innkoma hans gegn úrvalsliði MLS-deildarinnar á dögunum var mögnuð en liðið vann 2-0 sigur og kom hann inná í síðari hálfleik, skoraði og lagði svo upp mark fyrir Diego Costa.

Hann gerði þá bæði mörkin gegn Juventus í kvöld. Fyrra markið var lagleg afgreiðsla úr teignum og hann gerði svo nákvæmlega það sama níu mínútum síðar.

Það verður gaman að fylgjast með honum í spænsku deildinni á komandi tímabili og sjá hvort hann nái að feta í þau fótspor sem Antoine Griezmann skildi eftir sig.




Athugasemdir
banner
banner
banner