Man Utd ætlar að reka Ten Hag - Hver tekur við? - Tuchel hefur áhuga á starfinu
banner
   sun 11. apríl 2021 13:20
Ívan Guðjón Baldursson
Bjarni og Willum byrjuðu í jafnteflum
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Mynd: Christer Thorell
Willum Þór Willumsson var í byrjunarliði BATE Borisov sem heimsótti FC Minsk í hörkuslag í hvítrússneska boltanum í dag.

Willum spilaði fyrstu 55 mínúturnar og var skipt útaf í stöðunni 1-0 fyrir FC Minsk.

Heimamenn í Minsk tvöfölduðu forystuna en BATE tókst að jafna og urðu lokatölur 2-2.

BATE er með átta stig eftir fjórar umferðir og situr í þriðja sæti deildina, einu stigi eftir stórliði Shakhtar Soligorsk sem er á toppnum með leik til góða.

FC Minsk 2 - 2 BATE
1-0 M. Kasarab ('47)
2-0 K. Zinovich ('64)
2-1 P. Rybak ('82)
2-2 M. Skavysh ('92, víti)

Bjarni Mark Antonsson var þá í byrjunarliði Brage sem heimsótti Akropolis í fyrstu umferð tímabilsins í sænsku B-deildinni.

Akropolis tók forystuna í fyrri hálfleik og náði Brage að jafna í seinni hálfleik rétt áður en Birni var skipt af velli.

Lokatölur urðu 1-1 og eru bæði lið því komin með eitt stig.

Akropolis 1 - 1 Brage
1-0 M. Bouvin ('34)
1-1 L. Pilana ('56)
Athugasemdir
banner
banner
banner