Real Madrid sýnir Mac Allister áhuga - Greenwood eftirsóttur - Mourinho til Tyrklands? - Slot vill fá Silva
banner
   mið 08. maí 2024 11:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Forseti PSG: Er þér alvara með þessari spurningu?
Luis Enrique, stjóri PSG.
Luis Enrique, stjóri PSG.
Mynd: Getty Images
Nasser Al Khelaifi, forseti Paris Saint-Germain, var ekki hrifinn af spurningu sem hann fékk eftir tap Parísarliðsins í undanúrslitum Meistaradeildarinnar í gær.

PSG tapaði 0-1 fyrir Borussia Dortmund í gær og endaði einvígið samanlagt 0-2.

Enn og aftur er PSG að valda vonbrigðum í Meistaradeildinni en eftir leiknn var Al Khelaifi spurður út í framtíð stjórans, Luis Enrique.

„Er þér alvara með þessari spurningu," sagði Al Khelaifi en Enrique er á sínu fyrsta tímabili með PSG.

„Skilurðu fótbolta og veistu hvernig hann virkar? Við erum að byggja upp langtímaverkefni með yngsta hópnum í Evrópu. Framtíð er björt og við höldum bara áfram."
Athugasemdir
banner
banner
banner