Varane, Diaz, Matip, Yamal, Davies og Rashford koma við sögu
   fim 14. mars 2024 14:00
Elvar Geir Magnússon
Seldi æfingasvæðið til keppinautanna
Stuðningsmenn Reading vilja eigandann burt.
Stuðningsmenn Reading vilja eigandann burt.
Mynd: Getty Images
Mynd: Getty Images
Enska C-deildarliðið Reading glímir við mikla fjárhagserfiðleika og stuðningsmenn vilja losna við eigandann, kínverska viðskiptamanninn Dai Yongge.

Staða félagsins er það slæm að Yongge hefur samþykkt sölu á hágæða æfingasvæði félagsins á útsöluverði til grannana og keppinautana í Wycombe, sem spila í sömu deild.

Þegar hafa sex stig verið dregin af Reading og miklar áhyggjur eru af því að félaginu mistekist að standa við launagreiðslur þessa mánaðar og fái þá aukinn stigafrádrátt.

Reading hefur verið gríðarlega stolt af Bearwood Park æfingasvæðinu sem tekið var í notkun 2019. Það kostaði 50 milljónir punda að setja það upp og átti að vera merki um metnað félagsins til að komast upp í efstu deild.

Wycombe hefur verið í leit að æfingasvæði og hefur nú keypt Bearwood Park. Talið er það muni fæla mögulega kaupendur á Reading í burtu að æfingasvæðið sé ekki lengur í eigu félagsins.

Fótbolti.net fjallaði um það í janúar að Reading hafi þurft að taka erfiðar ákvarðanir í niðurskurði vegna þungra fjárhagsstöðu, starfsfólki var sagt upp og ekki var hægt að setja upphitun á æfingavöllum í gang.

Reading er í 18. sæti af 24 liðum í ensku C-deildinni.
Stöðutaflan England 1. deild - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Portsmouth 46 28 13 5 78 41 +37 97
2 Derby County 46 28 8 10 78 37 +41 92
3 Bolton 46 25 12 9 86 51 +35 87
4 Peterboro 46 25 9 12 89 61 +28 84
5 Oxford United 46 22 11 13 79 56 +23 77
6 Barnsley 46 21 13 12 82 64 +18 76
6 Cambridge City 0 0 0 0 0 0 0 0
7 Lincoln City 46 20 14 12 65 40 +25 74
8 Blackpool 46 21 10 15 65 48 +17 73
9 Stevenage 46 19 14 13 57 46 +11 71
10 Wycombe 46 17 14 15 60 55 +5 65
11 Leyton Orient 46 18 11 17 53 55 -2 65
12 Wigan 46 20 10 16 63 56 +7 62
13 Exeter 46 17 10 19 46 61 -15 61
14 Northampton 46 17 9 20 57 66 -9 60
15 Bristol R. 46 16 9 21 52 68 -16 57
16 Charlton Athletic 46 11 20 15 64 65 -1 53
17 Reading 46 16 11 19 68 70 -2 53
18 Cambridge United 46 12 12 22 39 61 -22 48
19 Shrewsbury 46 13 9 24 35 67 -32 48
20 Burton 46 12 10 24 39 67 -28 46
21 Cheltenham Town 46 12 8 26 41 65 -24 44
22 Fleetwood Town 46 10 13 23 49 72 -23 43
23 Port Vale 46 10 11 25 41 74 -33 41
24 Carlisle 46 7 9 30 41 81 -40 30
24 Forest Green 46 6 9 31 31 89 -58 27
Athugasemdir
banner
banner
banner