Varane, Diaz, Matip, Yamal, Davies og Rashford koma við sögu
banner
   fös 15. mars 2024 05:55
Ívan Guðjón Baldursson
England um helgina - Klassískur risaslagur á sunnudegi
Mynd: EPA
Mynd: Getty Images
Mynd: Getty Images
Það fara fjórir leikir fram í ensku úrvalsdeildinni um helgina á meðan 8-liða úrslit FA bikarsins verða spiluð.

Fjörið hefst á morgun þegar Wolves mætir Coventry City í hádegisleik dagsins. Liðin eigast við í 8-liða úrslitum í bikarnum, áður en tveir fallbaráttuslagir hefjast í úrvalsdeildinni.

Þar eru það nýliðar Burnley og Luton Town sem eiga heimaleiki gegn Brentford og Nottingham Forest, áður en Fulham og Tottenham eigast við í Lundúnaslag.

Á sama tíma hefst spennandi slagur í Manchester-borg, þar sem ríkjandi meistarar Man City taka á móti Newcastle í bikarnum.

Sunnudagurinn hefst á áhugaverðri viðureign Chelsea og Leicester, þar sem lærisveinar Mauricio Pochettino mæta öflugu toppliði Championship deildarinnar.

West Ham og Aston Villa eigast svo við í evrópuslag í ensku úrvalsdeildinni áður en stórleikur helgarinnar fer fram á Old Trafford.

Manchester United tekur þar á móti Liverpool í klassískum slag, þar sem mikið er í húfi fyrir bæði félög.

Laugardagur:
15:00 Burnley - Brentford
15:00 Luton - Nott. Forest
17:30 Fulham - Tottenham

Enski bikarinn:
12:15 Wolves - Coventry
17:30 Man City - Newcastle

Sunnudagur:
14:00 West Ham - Aston Villa

Enski bikarinn:
12:45 Chelsea - Leicester
15:30 Man Utd - Liverpool
Stöðutaflan England Premier league - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Arsenal 34 24 5 5 82 26 +56 77
2 Man City 33 23 7 3 80 32 +48 76
3 Liverpool 35 22 9 4 77 36 +41 75
4 Aston Villa 34 20 6 8 71 50 +21 66
5 Tottenham 32 18 6 8 65 49 +16 60
6 Man Utd 34 16 6 12 52 51 +1 54
7 Newcastle 34 16 5 13 74 55 +19 53
8 West Ham 35 13 10 12 56 65 -9 49
9 Chelsea 32 13 8 11 61 57 +4 47
10 Wolves 35 13 7 15 48 55 -7 46
11 Bournemouth 34 12 9 13 49 60 -11 45
12 Brighton 33 11 11 11 52 54 -2 44
13 Fulham 35 12 7 16 51 55 -4 43
14 Crystal Palace 35 10 10 15 45 57 -12 40
15 Brentford 35 9 9 17 52 59 -7 36
16 Everton 35 11 9 15 36 48 -12 34
17 Nott. Forest 34 7 9 18 42 60 -18 26
18 Luton 35 6 7 22 48 77 -29 25
19 Burnley 35 5 9 21 38 70 -32 24
20 Sheffield Utd 35 3 7 25 34 97 -63 16
Athugasemdir
banner
banner