Daniel Sturridge, fyrrum framherji Liverpool, er í viðræðum við tyrknesku félögin Trabzonspor og Besiktas samkvæmt frétt Sky Sports í dag.
Sturridge er félagslaus í augnablikinu en samningur hans hjá Liverpool rann út í sumar.
Sturridge er félagslaus í augnablikinu en samningur hans hjá Liverpool rann út í sumar.
Hinn 29 ára gamli Sturridge hefur einnig verið orðaður við Atalanta á Ítalíu, Frankfurt í Þýskalandi og félög í MLS-deildinni.
Samkvæmt frétt Sky í dag eru viðræður hins vegar í gangi við félög í Tyrklandi.
Sturridge skoraði 67 mörk í 160 leikjum á ferli sínum hjá Liverpool en hann átti ekki fast sæti í liðinu síðustu ár sín hjá félaginu.
Athugasemdir