Spænski varnarmaðurinn Eric Garcia var borinn af velli í leik Manchester City og Arsenal í kvöld en hann lenti í samstuði við brasilíska markvörðinn Ederson.
Þessi efnilegi varnarmaður var í byrjunarliði Man CIty í kvöld og hafði átt góðan leik eða alveg fram að 80. mínútu er hann rotaðist eftir samstuð við Ederson, samherja hans hjá City.
.
Garcia lá óvígur á vellinum í rúmlega níu mínútur áður en hann var borinn af velli. Pep Guardiola, stjóri félagsins, hefur miklar áhyggjur af líðan hans.
„Við höfum miklar áhyggjur af Eric Garcia. Hann kom ágætlega út úr þessu í fyrstu en við verðum að bíða. Hann er með meðvitund sem er góðs viti en hann á eftir að fara í frekari rannsóknir," sagði Guardiola.
I’m sorry but Ederson has to be more careful than that, especially with his own players. He could’ve killed poor Eric Garcia. Call your man off or jump around him. pic.twitter.com/U3y1OHBgaQ
— Sean Kent (@seankent) June 17, 2020
Athugasemdir