Malen, Maguire, Rashford, Greenwood, Yoro, Eriksen og fleiri góðir í slúðri dagsins
banner
   fim 20. september 2018 15:30
Magnús Már Einarsson
Mourinho: Dalot getur spilað með Man Utd í 10 ár
Mynd: Getty Images
Jose Mourinho, stjóri Manchester United, hrósaði bakverðinum unga Diogo Dalot eftir að hann spilaði sinn fyrsta leik í 3-0 sigrinum á Young Boys í Meistaradeildinni í gærkvöldi.

Hinn 19 ára gamli Dalot kom frá Poto í sumar og Mourinho var ánægður með frumraun hans.

„Frammistaða hans var mjög góð. Þetta var öflug frammistaða eftir hné aðgerð sem hann fór í," sagði Mourinho eftir leik.

„Allir geta séð hæfileikana og allir sáu að þetta er 19 ára leikmaður sem á eftir að spila í meira en 10 ár með Manchester United."

„Ég vil líka hrósa Luke (Shaw) því þeir spiluðu jafn vel. Þeir spiluðu mjög vel. Hætta okkar kom í gegnum þá báða."

„Þeir voru með stórkostlegar hreyfingar, gáfu breidd, áttu fyrirgjafir, stoðsendingar og voru með í hættulegustu sóknunum. Þeir vörðust líka vel."

Athugasemdir
banner
banner
banner
banner