Zlatan Ibrahimovic er einn af betri knattspyrnumönnum samtímans og af mörgum talinn besti knattspyrnumaður í sögu Svíþjóðar.
Þeir eru þó nokkrir Svíarnir sem komast nálægt Zlatan. Fyrir utan Henrik Larsson og Fredrik Ljungberg eru Gunnar Nordahl, Nils Liedholm og Kurt Hamrin kenndir við goðsagnir enn þann dag í dag.
„Ég er besti knattspyrnumaður í sögu Svíþjóðar. Er ég hrokafullur? Það skiptir ekki máli... ég er bestur!" sagði Zlatan eitt sinn.
Hann birti mynd af ummælunum á Twitter rétt í þessu og undirstrikaði að þau hafa ekki bara með hroka að gera.
„Mér var kennt að ljúga aldrei og segja alltaf sannleikann."
I was taught never to lie and always tell the truth pic.twitter.com/p8aCacYzuk
— Zlatan Ibrahimović (@Ibra_official) September 20, 2018
Athugasemdir