Man Utd og Arsenal vilja Guehi - Osimhen gæti farið til Chelsea eða PSG - Geertruida gæti fylgt Slot til Liverpool
   fös 05. apríl 2024 16:30
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Biður þjóðina um að gefa Gylfa tíma - „Svo mun hann geita yfir sig"
Icelandair
Gylfi fagnar marki á Laugardalsvelli síðasta haust.
Gylfi fagnar marki á Laugardalsvelli síðasta haust.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Karólína Lea Vilhjálmsdóttir, sem í þessum orðum er að undirbúa sig fyrir leikinn gegn Póllandi sem hefst 16:45, var til viðtals í vikunni. Hún ræddi við Fótbolta.net á hóteli landsliðsins.

Í lok viðtalsins var hún spurð út í frænda sinn Gylfa Þór Sigurðsson sem samdi við Val fyrr í vetur og spilar með liðinu í sumar.

Lestu um leikinn: Ísland 3 -  0 Pólland

Verða bæði augun límd á Valsleikina í sumar?

„Já, ég er Valsari karlameginn," sagði Karólína og hló.

„Ég er mjög spennt að horfa á hann, en ég bið þjóðina um að gefa honum smá tíma að komast í gang og svo mun hann geita yfir sig," bætti landsliðskonan við.

Gylfi mun á sunnudag spila sinn fyrsta deildarleik á Íslandi þegar Valur fær ÍA í heimsókn.
Karólína: Hef samt engar áhyggjur af því
Athugasemdir
banner
banner