„Það er geggjað að byrja á svona sigri," sagði Hildur Antonsdóttir, miðjumaður Íslands, eftir 3-0 sigur á Póllandi í fyrsta leik í undankeppni EM 2025.
Lestu um leikinn: Ísland 3 - 0 Pólland
„Þær eru með hættulega leikmenn og þær voru alveg að komast í góð færi, en Fanney greip rosalega vel inn í og svo náum við líka að lok á síðustu stundu."
„Við náum þessum tveimur mörkum rétt fyrir hálfleik. Það gefur okkur rosalega mikið og tekur mikið af þeim. Þegar við komum inn í seinni hálfleik eru þær búnar að missa trúna."
Hildur er búinn að sér taka stórt hlutverk í liðinu og er hún orðin ansi mikilvægur partur af miðsvæðinu.
„Mér líður alltaf vel þar. Þær mínútur sem ég fæ, þá líður mér inn á vellinum."
Hægt er að sjá viðtalið í heild sinni hér að ofan.
Athugasemdir