Atli Sigurjónsson, miðjumaður KR, var skipt af velli í sigri liðsins á ÍBV í gær eftir að hann hafði ælt á völlinn.
,,Ég tók góðar tvær mínútur þar sem ég ældi slatta," sagði Atli hlæjandi í samtali við Fótbolta.net í dag.
,,Ætli þetta hafi ekki verið einhver matur sem ég hef fengið mér eða skortur á mat. Ég neita að trúa því að ég æli af þreytu eftir 70 mínútur."
Rúnar Kristinsson þjálfari KR tók Atla af velli á 78. mínútu eftir að hann sá að Atli hafði ælt á völlinn.
,,Hannes (Þór Halldórsson) og fleiri voru að öskra á mig að hætta þessu labbi en þá var ég með æluna úti. Hálf stúkan var að hrópa á bekkinn að það væri maður að æla og þá brugðust þeir við og tóku mig út af."
,,Mér leið aðeins betur eftir að ég náði að æla. Síðan kíktum við í grillveislu til foreldra Andra Ólafs eftir leik og þá var allt í góðu. Ég lagaðist í maganum eftir að hafa fengið þetta fínasta kjöt þar. Þau eiga þakkir skilið," sagði Atli.
Athugasemdir