Danski framherjinn Pernille Harder endaði efst á lista The Guardian yfir bestu knattspyrnkonur í heimi árið 2018.
Um er að ræða kosningu hjá sérfræðingum The Guardian en um er að ræða leikmenn, þjálfara og blaðamenn víðsvegar af úr heiminum. Ana Victoria Cate, leikmaður HK/Víkings, er meðal annars í dómnefndinni.
Sara Björk Gunnarsdóttir, landsliðsfyrirliði og leikmaður Wolfsburg, var í efsta sæti listans.

Pernille, sem spilar með Wolfsburg, endaði efst í kjörinu, ástralski framherjinn Sam Kerr var í öðru sæti og norski framherjinn Ada Hegerberg í því þriðja.
Hegerberg varð fyrr í vikunni fyrsta konan til að vinna gullboltann sem besti leikmaður í heimi en Pernille hafði betur gegn henni í valinu hjá The Guardian.
Smelltu hér til að sjá topp 100 listann
Athugasemdir