Kylian Mbappe var hetja PSG þegar liðið mætti Saint-Etienne í frönsku úrvalsdeildinni í kvöld.
Mbappe skoraði sigurmarkið á 73. mínútu eftir sendingu frá Dani Alves inn á teig. Lokatölur 0-1, PSG í vil.
Marco Verratti var hvíldur í kvöld og Dani Alves spilaði á miðjunni með Leandro Paredes, sem kom til liðsins í janúar.
Eftir sigurinn í kvöld er PSG með 12 stiga forskot á Lille sem er í öðru sætinu en Parísarliðið hefur einnig leikið tveimur leikjum færri en Lille.
Þetta var nítjánda mark Mbappe á leiktíðinni og er hann því kominn með nítján mörk í átján leikjum. Magnaður leikmaður.
19 - Kylian Mbappé 🇫🇷 is the first French player to score 19 goals in his first 18 games of a Ligue 1 season over the last 45 years. Unsane. @PSG_English pic.twitter.com/fJRQgL0AyB
— OptaJean (@OptaJean) February 17, 2019
Athugasemdir