Isak, Tuchel, Sesko, Amorim, Rabiot, Branthwaite og fleiri góðir í slúðrinu í dag
   þri 30. apríl 2019 20:46
Fótbolti.net
Viltu vinna ferð fyrir tvo á leik í Englandi?
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Það er til mikils að vinna í Draumaliðsdeild Toyota en hægt er að skrá lið til leiks þar til klukkutíma fyrir leik ÍBV og Breiðabliks í Pepsi Max-deild kvenna klukkan 17:00 á fimmtudaginn.

Smelltu hér til að taka þátt í leiknum!

Stórglæsileg verðlaun
Toyota er aðalstyrktaraðili Draumaliðsdeildar kvenna líkt og í fyrra.

Þjálfari stigahæsta liðsins í Draumaliðsdeildinni í lok móts fær ferð fyrir tvo á leik í enska boltanum með VITA ferðum (að andvirði 240 þúsund krónur) sem og harðfisk frá Eyjabita.

Leikurinn í stuttu máli
Þú færð 100 milljónir króna til að kaupa 15 leikmenn úr Pepsi-deildinni. Leikmennirnir fá síðan stig fyrir frammistöðu sína á vellinum en mörg atriði eru tekin inn í reikninginn í stigagjöfinni.

Athugið að ekki hægt er að nota sama notendanafn og í fyrra. Fólk þarf að skrá sig upp á nýtt í ár.

Taktu þátt og sýndu snilli þína í að velja lið, þátttaka er að sjálfsögðu ókeypis!

Fyrsta umferðin í Pepsi-deildinni hefst 2. maí en þann dag lokar markaðurinn. Skráðu þitt lið til leiks í tæka tíð!

Smelltu hér til að taka þátt í leiknum!
Athugasemdir
banner
banner
banner