lau 09. nóvember 2019 05:55
Ívan Guðjón Baldursson
Ítalska deildin
Ítalía í dag - Heimaleikir Inter og Napoli sýndir beint
Lukaku er kominn með 9 mörk í 11 leikjum í Serie A.
Lukaku er kominn með 9 mörk í 11 leikjum í Serie A.
Mynd: Heimasíða Inter
Tveir af þremur leikjum dagsins í ítalska boltanum verða sýndir beint á Stöð 2 Sport 3 og Sport 4.

Dagurinn hefst á viðureign Brescia og Torino sem hafa farið illa af stað. Brescia er á botninum, fjórum stigum frá Torino.

Seinna í dag getur Inter tekið toppsætið af Juventus með sigri á heimavelli gegn spræku liði Verona sem hefur farið vel af stað og er um miðja deild.

Inter er með 28 stig eftir 11 umferðir, einu stigi eftir Juve. Þessi tvö lið virðast ætla að vera í toppbaráttunni en Napoli hefur farið rólega af stað og situr í sjöunda sæti, með 18 stig.

Napoli fær Genoa í heimsókn og kemur ekkert nema sigur til greina fyrir þá ljósbláu. Genoa er einu stigi fyrir ofan botnliðin.

Leikir dagsins:
14:00 Brescia - Torino
17:00 Inter - Verona (Stöð 2 Sport 3)
19:45 Napoli - Genoa (Stöð 2 Sport 4)
Stöðutaflan Ítalía Serie A - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Lazio 10 8 2 0 22 7 +15 26
2 Inter 10 8 1 1 26 13 +13 25
3 Roma 10 7 3 0 28 10 +18 24
4 Como 10 7 2 1 18 8 +10 23
5 Milan 10 6 3 1 21 12 +9 21
6 Frosinone 10 5 3 2 22 14 +8 18
7 Napoli 9 4 2 3 17 11 +6 14
8 Juventus 9 4 2 3 11 10 +1 14
9 Bologna 10 4 2 4 14 13 +1 14
10 Torino 10 4 2 4 14 14 0 14
11 Cagliari 10 4 2 4 8 13 -5 14
12 Atalanta 9 3 2 4 16 17 -1 11
13 Genoa 9 3 1 5 8 13 -5 10
14 Lecce 9 3 0 6 10 19 -9 9
15 Sassuolo 9 2 2 5 14 22 -8 8
16 Monza 10 2 1 7 17 24 -7 7
17 Fiorentina 9 1 2 6 11 21 -10 5
18 Cremonese 38 8 10 20 32 57 -25 34
18 Parma 9 1 2 6 5 15 -10 5
19 Udinese 10 1 2 7 11 23 -12 5
19 Verona 38 3 12 23 25 61 -36 21
20 Venezia 10 1 0 9 6 20 -14 3
20 Pisa 38 2 12 24 26 71 -45 18
Slapp
banner