Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   þri 03. desember 2019 21:24
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
England: Magnaður sigur Palace - Einum færri í 70 mínútur
Fagnað með stuðningsmönnum.
Fagnað með stuðningsmönnum.
Mynd: Getty Images
Sakho kom inn í lið Palace, en var rekinn af velli eftir aðeins 19 mínútur. Þrátt fyrir það vann Palace leikinn.
Sakho kom inn í lið Palace, en var rekinn af velli eftir aðeins 19 mínútur. Þrátt fyrir það vann Palace leikinn.
Mynd: Getty Images
Crystal Palace 1 - 0 Bournemouth
1-0 Jeffrey Schlupp ('76 )
Rautt spjald:Mamadou Sakho, Crystal Palace ('19)

Crystal Palace tókst að vinna Bournemouth í ensku úrvalsdeildinni í kvöld þrátt fyrir að hafa verið manni færri frá 19. mínútu leiksins.

Mamadou Sakho, sem kom inn í byrjunarlið Palace fyrir Scott Dann fyrir leikinn, fékk að líta beint rautt spjald á 19. mínútu. Brotið má sjá hérna.

Þrátt fyrir rauða spjaldið þá gafst ekki Palace upp. Bournemouth var mikið meira með boltann, en náði ekki að skapa sér mörg færi. Gestirnir í Bournemouth áttu skot á markið í seinni hálfleiknum.

Palace átti aftur á móti skot á markið í seinni hálfleiknum, skot sem fór inn. Jeffrey Schlupp skoraði á 76. mínútu er hann fór fram hjá tveimur leikmönnum Bournemouth og átti skot sem Aaron Ramsdale réði ekki við.

Bournemouth náði ekki að svara. „Heilt yfir hefur þetta verið slakt hjá Bournemouth. Mamadou Sakho var rekinn af velli, en Cheikhou Kouyate fór í vörnina og það er eins og hann hafi spilað þar allt tímabilið," sagði Charlie Adam, miðjumaður Reading, á BBC.

„Callum Wilson hefur ekkert komist í boltann og Palace hafa verið svo skipulagðir. Þeir eru líklegri til að skora annað mark en Bournemouth að jafna."

Lokatölur 1-0 fyrir Crystal Palace sem er komið upp í fimmta sæti ensku úrvalsdeildarinnar með 21 stig. Roy Hodgson að gera mjög flotta hluti með þetta lið.

Bournemouth er í 12. sæti með 16 stig.

Núna er í gangi leikur Burnley og Manchester City. Hægt er að fylgjast með stöðunni í úrslitaþjónustu á forsíðu.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner
banner