Bolasie skrifar undir í Brasilíu (Staðfest)
Kantmaðurinn Yannie Bolasie hefur fengið félagaskipti yfir til Criciúma í Brasilíu á frjálsri sölu. Þetta er í fyrsta sinn sem hinn 34 ára gamli Bolasie spilar fótbolta utan Evrópu.
Leitaðu í fyrirsögnum, texta eða eftir höfundi. Fyrsta slice notar staðlaðar fréttafærslur úr typed fixtures og heldur leitinni öruggri án backend-háðra SQL fyrirspurna.
Niðurstöður
Leit að "(Staðfest)" í fyrirsögn og texta skilaði 25152 niðurstöðum.
Leitin er nú fixture-backed og leitar eingöngu í stöðluðum fréttum. Leikir/skýrslur og endanleg backend-samningsleit eru enn ókláruð.
Kantmaðurinn Yannie Bolasie hefur fengið félagaskipti yfir til Criciúma í Brasilíu á frjálsri sölu. Þetta er í fyrsta sinn sem hinn 34 ára gamli Bolasie spilar fótbolta utan Evrópu.
Andrea Rán Snæfeld Hauksdóttir er gengin í raðir FH en Fótbolti.net greindi fyrst frá því að hún væri að ganga í raðir félagsins fyrr í þessari viku. Fleiri félög á Íslandi höfðu áhuga á henni en hún valdi að fara í FH. Andrea Rán hefur skrifað undir samning við Fimleikafélagið sem gildir út komandi keppnistímabil.
Liverpool staðfesti nú í hádeginu að Richard Hughes hafi verið ráðinn til félagsins sem nýr íþróttastjóri og taki við nýja starfinu í lok þessa tímabils, 1. júní Hughes sem er 44 ára gamall kemur til félagsins frá Bournemouth þar sem hann var í samskonar stöðu. Hann kemur í kjölfar þess að Michael Edwards var ráðinn til félagsins sem yfirmaður fótboltamála á dögunum en saman voru þeir hjá Portsmouth þegar Hughes var þar leikmaður í gamla daga.
<p>Gary Rowett hefur verið ráðinn bráðabirgðastjóri Birmingham. Hann tekur við af Tony Mowbray sem er í veikindaleyfi.</p>
<p>Fylkir og Gunnlaugur Fannar Guðmundsson hafa komist að samkomulagi um riftun á samningi leikmannsins.</p>
Meistaraflokkur karla hjá Tindastóli er að styrkja sig fyrir komandi átök í 4. deildinni og hefur bætt nokkrum öflugum leikmönnum við sig sem búa yfir góðri reynslu.
Guðmundur Páll Einarsson er orðinn nýr leikmaður KFG eftir að hafa alist upp hjá Vestra og spilað 12 leiki fyrir félagið í Lengjudeildinni.
Dalvík/Reynir var að krækja í Björgvin Mána Bjarnason, sóknartengilið sem kemur úr röðum KA.
Bakvörðurinn knái Óli Valur Ómarsson mun leika með Stjörnunni í sumar en hann kemur á lánssamningi frá sænska félaginu Sirius.
Lazio er búið að staðfesta ráðningu á nýjum þjálfara eftir að Maurizio Sarri var látinn taka pokann sinn á dögunum.
Ralph Hasenhuttl hefur verið ráðinn sem nýr stjóri Wolfsburg í þýsku úrvalsdeildinni.
Íslenskar fréttir eru áberandi á lista yfir mest lesnu fréttir síðustu viku. Koma Gylfa Sig í Val vakti mikla athygli en mestu athygli vöktu ummæli Ragnars Sigurðssonar um ástæðuna fyrir því að hann dró sig úr landsliðsverkefninu í Bandaríkjunum árið 2021. Hér að neðan má sjá lista yfir 20 mest lesnu fréttir síðutu viku.
Grindavík hefur fengið góðan liðsstyrk þar sem markvörðinn Katelyn Kellogg hefur skrifað undir samning við félagið út komandi tímabil í Lengjudeild kvenna. Katelyn lék í marki Fjölnis á síðustu leiktíð.
Spánverjinn Ion Perello hefur skrifað undir tveggja ára samning við Grindavík.
Kantmaðurinn Hassan Jalloh hefur fengið félagaskipti yfir í Grindavík og mun spila með liðinu í Lengjudeildinni í sumar. Fótbolti.net sagði fyrst frá þessum skiptum fyrir rúmum mánuði síðan. Hassan er fjölhæfur sóknarmaður sem gekk í raðir HK fyrir sumarið 2022. Hann hjálpaði liðinu að komast upp úr Lengjudeildinni og spilaði svo 24 leiki í Bestu deildinni síðasta sumar.
HK hefur samið við miðjumanninn Viktor Helga Benediktsson en hann gerir tveggja ára samning í Kópavoginum.
Víðir Garði er að styrkja sig fyrir komandi átök í 3. deild karla eftir að liðinu mistókst að komast upp úr deildinni í fyrra. Víðir endaði aðeins fjórum stigum frá öðru sætinu og ætlar að gera betur í ár.
ÍR hefur verið að gera flotta hluti á undirbúningstímabilinu og er að styrkja hópinn sinn fyrir komandi átök í Lengjudeild kvenna, eftir að hafa sigrað 2. deildina í fyrra.
Hvíti riddarinn hefur verið duglegur að styrkja leikmannahópinn sinn í sumar og voru Mosfellingar að tryggja sér þjónustu Sindra Snæs Vilhjálmssonar, sem er fæddur 2002.
Danski framherjinn Anton Söjberg sem lék með HK seinni hluta síðasta tímabils hefur samið við færeyska félagið B36. Söjberg kom til HK í glugganum og skoraði fjögur mörk í níu leikjum og lagði upp eitt. Hann var samningsbundinn HK út komandi tímabil en rifti samningnum í vetur.