Varane, Diaz, Matip, Yamal, Davies og Rashford koma við sögu
banner
   þri 05. mars 2024 09:45
Elvar Geir Magnússon
Kerr ákærð fyrir að sýna lögreglumanni kynþáttafordóma
Mynd: EPA
Sam Kerr, leikmaður kvennaliðs Chelsea og ástralska landsliðsins, mætti í dómssalinn í gær.

Kerr er eitt stærsta nafn heims í kvennaboltanum en hún er sökuð um að hafa verið með kynþáttafordóma í garð lögreglumanns. Leigubílstjóri hafði kvartað yfir Kerr og því mætti umræddur lögreglumaður á staðinn.

Kerr er þrítug og er sögð hafa verið með ógnandi eða móðgandi orðalag sem sneru að kynþætti lögreglumannsins.

Hún neitar sök en ástralska fótboltasambandið segist ekki hafa fengið upplýsingar um málið heldur frétt af því í gegnum fjölmiðla.

Kerr gekk í raðir Chelsea 2019-20 tímabilið og hefur skorað 99 mörk í 128 leikjum fyrir félagið.
Athugasemdir
banner
banner