Varane, Diaz, Matip, Yamal, Davies og Rashford koma við sögu
   þri 05. mars 2024 20:58
Ívan Guðjón Baldursson
Lengjubikarinn: Jafnt hjá Stjörnunni og Njarðvík
Mynd: Jónína Guðbjörg Guðbjartsdóttir
Stjarnan 1 - 1 Njarðvík
0-1 Svavar Örn Þórðarson ('50)
1-1 Hilmar Árni Halldórsson ('65)

Stjarnan og Njarðvík áttust við í eina leik kvöldsins í Lengjubikarnum og var staðan markalaus eftir fyrri hálfleik.

Njarðvíkingar voru snöggir að taka forystuna í síðari hálfleik þegar Svavar Örn Þórðarson, fæddur 2004, kom boltanum í netið.

Það tók heimamenn í Garðabæ stundarfjórðung að jafna metin en meira var ekki skorað og urðu lokatölurnar því 1-1. Hinn þaulreyndi Hilmar Árni Halldórsson gerði jöfnunarmarkið.

Þetta er annað stig beggja liða í Lengjubikarnum, þar sem Stjarnan er með tvö stig eftir fjórar umferðir en Njarðvík er búin að spila alla sína leiki í riðlakeppninni.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner