De Bruyne og Grealish til Napoli? - Rodrygo og Frimpong til Liverpool - Al Hilal vill tvo frá Liverpool - Tveir orðaðir frá Newcastle
banner
banner
miðvikudagur 7. maí
Lengjudeild kvenna
mánudagur 14. apríl
Besta-deild karla
laugardagur 12. apríl
Mjólkurbikar karla
föstudagur 11. apríl
Meistarar meistaranna konur
þriðjudagur 8. apríl
Þjóðadeild kvenna
laugardagur 5. apríl
Besta-deild karla
föstudagur 4. apríl
Þjóðadeild kvenna
fimmtudagur 3. apríl
Mjólkurbikar karla
sunnudagur 30. mars
Meistarar meistaranna
föstudagur 9. maí
Umspil Championship
Coventry - Sunderland - 19:00
Bundesligan
Wolfsburg - Hoffenheim - 18:30
WORLD: International Friendlies
Finland U-16 5 - 2 Greece U-16
Ukraine U-16 2 - 1 Hungary U-16
North Macedonia U-16 2 - 4 Slovakia U-16
Montenegro U-16 - Serbia U-16 - 16:00
Dominica 0 - 0 Barbados
Serie A
Milan - Bologna - 18:45
La Liga
Las Palmas - Vallecano - 19:00
Damallsvenskan - Women
Malmo FF W - Alingsas W - 17:00
Elitettan - Women
Team TG W - Sunnana W - 17:00
fös 05.maí 2023 14:00 Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Magazine image

Spá þjálfara og fyrirliða fyrir Lengjudeildina: 1. sæti

Fótbolti.net kynnir liðin sem leika í Lengjudeildinni í sumar eitt af öðru eftir því hvar þeim er spáð. Við fengum alla fyrirliða og þjálfara í deildinni til að spá fyrir sumarið og fengu liðin stig frá 1-11 eftir því en ekki var hægt að spá fyrir sínu eigin liði.

Spáin:
1. ÍA, 229 stig
2. Grindavík, 211 stig
3. Fjölnir, 203 stig
4. Leiknir R., 162 stig
5. Grótta, 161 stig
6. Afturelding, 151 stig
7. Vestri, 135 stig
8. Þór, 98 stig
9. Njarðvík, 79 stig
10. Selfoss, 70 stig
11. Þróttur R., 58 stig
12. Ægir, 27 stig

1. ÍA
Skagamenn eru með frábært lið, jafnvel betra en í Bestu deildinni í fyrra. Indriði inn fyrir Christian Köhler, Viktor Jóns inn fyrir Eyþór Wöhler og Arnór Smára inn fyrir Kaj Leó, má kalla allt styrkingar þó að vissulega hafi Wöhler átt virkilega gott tímabil. Hinsvegar mega Skagamenn ekki við miklum skakkaföllum, Arnór þarf að haldast heill og Steinar Þorsteinsson þarf að koma sér út á völl og í stand sem fyrst, þá geta þeir valtað yfir þessa deild.



Þjálfarinn: Jón Þór Hauksson er á leið inn í sitt annað tímabil með liðið, tók við eftir að hafa stýrt Vestra 2021. Stefnan hjá ÍA er að hafa heimamann í brúnni og Jón Þór þekkir mjög vel til hjá félaginu, áður verið þjálfari meistaraflokks sem og yfirþjálfari hjá félaginu og aðstoðarþjálfari meistaraflokks.


Jón Þór

Styrkleikar: Reynslumikið og sterkt lið, nokkrir leikmenn sem ættu að teljast sem Bestu deildar leikmenn og svo er Skaginn alltaf erfiður heim að sækja.


Indriði Áki er kominn frá Fram

Veikleikar: Glænýtt hafsentapar myndað af Svíunum Pontus Lindgren og Johannes Vall, Johannes er bakvörður að upplagi en verið að leysa miðvörðinn í vetur og gert það þokkalega, spurning hvernig þeir virka saman. Einnig vantar meiri og betri breidd í liðið, gríðarlega sterkt byrjunarlið en mikið getubil þegar það þarf að kafa dýpra eftir leikmönnum.

Lykilmenn: Indriði Áki Þorláksson er límið á miðjunni. Arnór Smárason er einhver stærsti prófíll sem spilað hefur í deildinni og eru hans gæði þekkt stærð og Viktor Jónsson er frábær framherji en þarf að haldast heill í sumar.


Viktor Jónsson er hörkuframherji

Fylgjast með: Daníel Ingi Jóhannesson, strákur fæddur 2007, hrikalega öflugur og spennandi miðjumaður.


Daníel Ingi

Komnir
Arnleifur Hjörleifsson frá Kórdrengjum
Arnór Smárason frá Val
Björn Bergmann Sigurðarson frá Noregi
Dino Hodzic frá Kára
Finnbogi Laxdal Aðalgeirsson frá Kára (var á láni)
Hákon Ingi Einarsson frá Kórdrengjum
Indriði Áki Þorláksson frá Fram
Pontus Lindgren á láni frá KR


Arnór Smárason er kominn heim

Farnir
Aron Bjarki Jósepsson í Gróttu
Árni Snær Ólafsson í Stjörnuna
Eyþór Aron Wöhler í Breiðablik
Oliver Stefánsson til Norrköping (var á láni)
Hallur Flosason hættur
Benedikt Warén í Vestra (var á láni hjá ÍA)
Brynjar Snær Pálsson í HK
Christian Köhler til Danmerkur
Kaj Leo í Bartalsstovu í Leikni R.
Kristian Lindberg til Danmerkur
Sigurður Hrannar Þorsteinsson á láni til Völsungs
Tobias Stagaard til Danmerkur (var á láni)
Wout Droste hættur

Líklegt byrjunarlið


Fyrstu þrír leikir ÍA:
5. maí (í dag), ÍA - Grindavík (Norðurálsvöllurinn)
13. maí, Vestri - ÍA (Olísvöllurinn)
21. maí, ÍA - Afturelding (Norðurálsvöllurinn)


Athugasemdir
banner