Arsenal með í kapphlaupinu um Ekitike - Mikill áhugi á McAtee - Man Utd tilbúið að selja Malacia
banner
föstudagur 4. júlí
Lengjudeild karla
mánudagur 30. júní
2. deild karla
laugardagur 28. júní
Lengjudeild karla
fimmtudagur 26. júní
Lengjudeild karla
þriðjudagur 24. júní
Lengjudeild kvenna
fimmtudagur 19. júní
Mjólkurbikar karla
Lengjudeild karla
Lengjudeild kvenna
Mjólkurbikar karla
fimmtudagur 12. júní
Mjólkurbikar kvenna
Lengjudeild kvenna
Mjólkurbikar kvenna
miðvikudagur 11. júní
þriðjudagur 10. júní
Vináttulandsleikur
föstudagur 6. júní
Vináttulandsleikur
Besta-deild kvenna
Lengjudeild kvenna
fimmtudagur 5. júní
þriðjudagur 3. júní
Þjóðadeild kvenna
mánudagur 2. júní
Besta-deild karla
laugardagur 31. maí
2. deild karla
mánudagur 30. júní
HM félagsliða
Inter 0 - 2 Fluminense
Man City - Al Hilal Riyadh - 01:00
Eliteserien
SK Brann 1 - 0 Sandefjord
þri 02.maí 2023 15:00 Mynd: Fótbolti.net - Eyjólfur Garðarsson
Magazine image

Spá þjálfara og fyrirliða fyrir Lengjudeildina: 5. sæti

Fótbolti.net kynnir liðin sem leika í Lengjudeildinni í sumar eitt af öðru eftir því hvar þeim er spáð. Við fengum alla fyrirliða og þjálfara í deildinni til að spá fyrir sumarið og fengu liðin stig frá 1-11 eftir því en ekki var hægt að spá fyrir sínu eigin liði.

Spáin:
1. ?
2. ?
3. ?
4. ?
5. Grótta, 161 stig
6. Afturelding, 151 stig
7. Vestri, 135 stig
8. Þór, 98 stig
9. Njarðvík, 79 stig
10. Selfoss, 70 stig
11. Þróttur R., 58 stig
12. Ægir, 27 stig

5. Grótta
Grótta, eins og svo mörg önnur lið, getur svo hæglega blandað sér í þessa umspilsbaráttu ef hlutirnir falla með þeim en einnig lent í algjöru brasi ef ekki. Í leikmannahópnum eru gæði, reynsla og þekking til að ná árangri í þessari deild. Í ár veltur það mikið á því hvernig tekst að smíða nýtt lið og búa til nýjar stjörnur eftir að hafa misst tvo af sínum bestu mönnum eftir síðasta tímabil.



Þjálfarinn: Christopher Brazell er á leið í sitt annað tímabil sem aðalþjálfari Gróttu. Hann er Englendingur og mjög efnilegur þjálfari sem var áður aðstoðarþjálfari liðsins og þjálfari yngri flokka. Hann var í akademíunni hjá Norwich á sínum tíma en hefur verið hjá Gróttu undanfarin ár.



Styrkleikar: Ungt, sprækt og vel þjálfað lið með Chris á öðru ári, hann kom sterku handbragði á liðið strax á fyrsta ári og hann hefur fengið annað langt undirbúningstímabil til þess að móta liðið. Grótta er með sterkan kjarna sem hefur haldist í lengri tíma og meðal annars spilað í efstu deild, fengu Pétur Theodór heim sem á eftir að reynast þeim gulls í gildi ef hann er heill og getur tekið þátt.


Fyrirliðinn Addi bomba

Veikleikar: Þeirra langbestu menn í fyrra horfnir á braut en það voru hinir eldfljótu Luke Rae og Kjartan Kári, þeirra hraði og kraftur á köntunum spilaði stórt hlutverk í leikstíl Gróttu. Það á eftir að koma í ljós hvernig Grótta glímir við þann missi, gætu mögulega strögglað aðeins sóknarlega. Einnig er og hefur varnarleikurinn oft verið brothættur en þeir hafa bjargað því með að skora meira, spurning hvernig tekst til með það í ár. Addi bomba þarf að líma vörnina saman betur en í vetur þar sem þeir fengu á sig að meðaltali tvö mörk í leik í Lengjubikarnum og 3 mörk á sig gegn KH.

Lykilmenn: Miðvörðurinn Arnar Þór Helgason, miðjumaðurinn Kristófer Orri Pétursson og framherjinn Pétur Theodór Árnason.


Pétur er markavél þegar hann er heill heilsu

Fylgist með: Tómas Johannessen, ótrúlega teknískur og spennandi sóknarmaður fæddur 2007, getur leikið sér að öllum varnarmönnum deildarinnar á sínum degi og sýndi það í vetur.


Efnilegur leikmaður

Komnir
Arnar Númi Gíslason á láni frá Breiðabliki
Aron Bjarki Jósepsson frá ÍA
Grímur Ingi Jakobsson frá KR
Hilmar Andrew McShane frá Grindavík
Kári Eydal frá Rosenborg
Pétur Theódór Árnason á láni frá Breiðabliki
Rafal Stefán Daníelsson frá Þrótti Vogum
Sigurður Steinar Björnsson á láni frá Víkingi
Tareq Shihab frá Hollandi
Theódór Henriksen frá Breiðabliki


Aron Bjarki kom í vetur

Farnir
Benjamin Friesen til Þýskalands
Jón Ívan Rivine til Fylkis
Kári Eydal á láni til KV
Kjartan Kári Halldórsson til Haugesund (svo lánaður til FH)
Luke Rae í KR
Óliver Dagur Thorlacius til Fjölnis
Dagur Þór Hafþórsson í FH (var á láni)
Sigurbergur Áki Jörundsson í Stjörnuna (var á láni)

Líklegt byrjunarlið


Fyrstu þrír leikir Gróttu:
5. maí, Grótta - Njarðvík (Vivaldivöllurinn)
12. maí, Grindavík - Grótta (Grindavíkurvöllur)
21. maí, Grótta - Vestri (Vivaldivöllurinn)
Athugasemdir