Varane, Diaz, Matip, Yamal, Davies og Rashford koma við sögu
   fös 08. mars 2024 05:55
Ívan Guðjón Baldursson
Þýskaland um helgina - Stuttgart spilar við Berlin í kvöld
Mynd: EPA
Mynd: EPA
Stuttgart tekur á móti Union Berlin í fyrsta leik helgarinnar í þýska boltanum. Liðin eigast við í kvöld en Stuttgart er að eiga frábært tímabil og er í góðri stöðu í þriðja sæti deildarinnar.

Union Berlin er átta stigum fyrir ofan fallsvæðið eftir slæma byrjun á tímabilinu, en virðist vera komið úr fallhættu eftir skárra gengi á undanförnum mánuðum.

Á morgun eiga FC Bayern og RB Leipzig heimaleiki, þegar fallbaráttulið Mainz og Darmstadt kíkja í heimsókn. Bayern er óvænt tíu stigum eftirá í titilbaráttunni og þarf því nauðsynlega á sigri að halda alveg eins og Leipzig sem er einu stigi frá Borussia Dortmund í meistaradeildarbaráttunni. Dortmund heimsækir Werder Bremen í lokaleik laugardagsins.

Þrír síðustu leikir helgarinnar fara fram á sunnudaginn, þar sem topplið Bayer Leverkusen fær Wolfsburg í heimsókn í spennandi slag.

Föstudagur:
19:30 Stuttgart - Union Berlin

Laugardagur:
14:30 Bayern - Mainz
14:30 RB Leipzig - Darmstadt
14:30 M'Gladbach - Köln
14:30 Augsburg - Heidenheim
17:30 Werder Bremen - Dortmund

Sunnudagur:
14:30 Bochum - Freiburg
16:30 Eintracht Frankfurt - Hoffenheim
18:30 Leverkusen - Wolfsburg
Stöðutaflan Þýskaland Bundesliga - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Leverkusen 31 25 6 0 77 22 +55 81
2 Bayern 31 22 3 6 89 38 +51 69
3 Stuttgart 31 20 4 7 70 38 +32 64
4 RB Leipzig 31 19 5 7 73 35 +38 62
5 Dortmund 31 16 9 6 59 39 +20 57
6 Eintracht Frankfurt 31 11 12 8 47 42 +5 45
7 Freiburg 31 11 7 13 43 55 -12 40
8 Augsburg 31 10 9 12 48 52 -4 39
9 Hoffenheim 31 11 6 14 55 63 -8 39
10 Werder 31 10 7 14 41 50 -9 37
11 Heidenheim 30 8 10 12 43 52 -9 34
12 Wolfsburg 31 9 7 15 37 51 -14 34
13 Gladbach 30 7 10 13 53 60 -7 31
14 Bochum 31 6 12 13 37 62 -25 30
15 Union Berlin 30 8 5 17 26 50 -24 29
16 Mainz 30 5 12 13 31 48 -17 27
17 Köln 30 4 10 16 23 53 -30 22
18 Darmstadt 30 3 8 19 30 72 -42 17
Athugasemdir
banner