Varane, Diaz, Matip, Yamal, Davies og Rashford koma við sögu
   mið 13. mars 2024 17:30
Elvar Geir Magnússon
Ramsey ekki með gegn Ajax
Jacob Ramsey.
Jacob Ramsey.
Mynd: Getty Images
Jacob Ramsey leikmaður Aston Villa meiddist á fæti fyrr í þessum mánuði og hefur misst af síðustu tveimur leikjum liðsins.

Þessi hæfileikaríki sóknarmiðjumaður var ekki með í fyrri leiknum gegn Ajax í Sambandsdeildinni og missir einnig af seinni leiknum sem verður á Villa Park á morgun.

Fyrri leikurinn endaði með 0-0 jafntefli í Amsterdam.

„Hann er ekki enn orðinn klár og verður ekki með á morgun. Vonandi verður hann ekki lengi frá en leikurinn á morgun kemur allavega of snemma," segir Unai Emery stjóri Villa.

Villa verður einnig án Ezri Konsa og Nicolo Zaniolo sem taka út leikbann.

Kristian Nökkvi Hlynsson er meðal leikmanna Ajax og var í byrjunarliðinu í fyrri leiknum gegn Villa.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner
banner