Varane, Diaz, Matip, Yamal, Davies og Rashford koma við sögu
banner
   fim 14. mars 2024 18:23
Ívan Guðjón Baldursson
Lewandowski: Ég verð áfram hjá Barca
Vonast til að spila við Mbappé
Mynd: EPA
Pólska goðsögnin Robert Lewandowski fór víðan völl í hálftíma viðtali við pólska fréttamanninn Tomasz Wlodarczyk.

Hann ræddi um ýmsa hluti í viðtalinu, meðal annars möguleg félagsskipti Kylian Mbappé til Real Madrid og framtíð sína hjá Barcelona.

Lewandowski er samningsbundinn Barca til sumarsins 2026 en hann er búinn að skora 19 mörk og gefa 7 stoðsendingar í 38 leikjum það sem af er tímabils. Honum gekk betur á sínu fyrsta tímabili með Barca, en núna er Lewandowski að verða 36 ára gamall.

„Ég veit að ég verð hjá Barcelona á næstu leiktíð, sama hvað er búið að segja í fjölmiðlum. Einn daginn segja þeir eitt og þann næsta segja þeir eitthvað allt annað. Framtíðin er skýr fyrir mér, sama hvað fjölmiðlar segja," sagði Lewandowski meðal annars.

„Það er erfitt fyrir mig að tjá mig um þessi félagsskipti vegna þess að ég hef ekki enn séð neitt 'here we go!'. Ég hef talað við Kylian í fortíðinni og held að það væri frábært að spila gegn honum í La Liga."
Athugasemdir
banner
banner