Eric Dier sagði í hlaðvarpsþættinum The Overlap á vegum Sky Bet að hann hefði óskað þess að hann hefði hjálpað Dele Alli meira í gegnum tíðina.
Alli opnaði sig upp á gáttí viðtali við Gary Neville á síðasta ári um erfiðleika sína á yngri árum. Þá hefur hann fengið aðstoð við ofnotkun á svefntöflum.
Dier og Alli eru mjög góðir vinir og eru í stöðugu sambandi en þeir léku saman hjá Tottenham frá 2015-2022.
„Ég er svekktur að hafa ekki gert meira. Þegar ég horfi til baka komu upp mörg atvik og ég var ekki með heildarmyndina. Ég var þessi þreytandi eldri manneskja, ég var alltaf að skipta mér af honum, hann faldi hluti fyrir mér eða sagði mér bara 20% sannleikann. Það er mikil eftirsjá og ég vildi óska þess að ég hafi gert meira," sagði Dier.
Dier sagði frá því að hann hafi átt erfitt með að horfa á viðtalið við Alli og hafi aðeins séð brot úr því.