Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   lau 08. ágúst 2009 16:52
Hafliði Breiðfjörð
Heimild: Opinber vefur Liverpool 
Carragher meiddist í tapi Liverpool gegn Atletico Madrid
Mynd: Getty Images
Jamie Carragher miðvörður Liverpool varð að fara af velli vegna meiðsla í 1-2 tapi liðsins gegn Atletico Madrid í síðasta æfingaleik sumarsins á Anfield í dag.

Carragher fór af velli eftir 15 mínútna leik í leiknum þar sem Sergio Aguero og Diego Forlan komu Madrídingum í 0-2 áður en Lucas Leiva minnkaði muninn í lokin.

Rafael Benítez stjóri Liverpool sagði svo eftir leikinn að hann hafi trú á að Carragher verði klár í leikinn gegn Tottenham um næstu helgi en allir miðverðir liðsins eru nú meiddir.

,,Hann er í lagi," sagði Benítez eftir leik. ,,Hann sneri sig á ökkla og það var bara varúðarráðstöfun að taka hann útaf því við erum í vandræðum með hina tvo miðverðina og vildum vernda hann."

Aðspurður hvort það væri áhyggjuefni nú þegar Martin Skrtel og Daniel Agger eru líka meiddir sagði Benítez: ,,Við verðum að bíða núna, leikmennirnir þrír eru meiddir, en á batavegi svo ég tel að þeir verði klárir í næsta leik."
Athugasemdir
banner
banner