Rashford, Fonseca, Moyes, Jorginho, Fati, Lenglet, Amorim, Sterling og Lukaku koma við sögu
   lau 06. janúar 2018 19:07
Magnús Már Einarsson
Coutinho til Barcelona (Staðfest)
Mynd: Getty Images
Barcelona hefur staðfest kaup sín á Philippe Coutinho frá Liverpool. Coutinho kemur til Barcelona á 142 milljónir punda og er þar með næstdýrasti leikmaður sögunnar á eftir Neymar sem fór frá Barcelona til PSG í sumar á 200 milljónir punda.

Coutinho skrifar undir fimm og hálfs árs samning við Barcelona.

Riftunarákvæðið í samningi hans hjá Barcelona hljóðar upp á 400 milljónir evra eða 354 milljónir punda.

Barcelona gerði þrjú tilboð í Coutinho í sumar en þau voru öll lægri en núverandi upphæð og Liverpool hafnaði þeim.

Félögin náðu loks saman í dag og Barcelona var ekki lengi að staðfesta félagaskiptin.

Coutinho verður síðan formlega kynntur fyrir stuðningsmönnum félagsins á næstu dögum.

Hér að neðan má sjá myndband þar sem Coutinho er kynntur sem nýr leikmaður Barcelona.



Athugasemdir
banner
banner
banner