Rashford, Fonseca, Moyes, Jorginho, Fati, Lenglet, Amorim, Sterling og Lukaku koma við sögu
   þri 09. apríl 2019 09:18
Elvar Geir Magnússon
Drinkwater stendur ekki undir nafni - Ákærður fyrir ölvunarakstur
Danny Drinkwater (til hægri).
Danny Drinkwater (til hægri).
Mynd: Mirror
Miðjumaðurinn Danny Drinkwater hjá Chelsea á ekki sjö dagana sæla.

Hann hefur aðeins spilað einn leik á þessu tímabili en það var tapleikurinn gegn Manchester City í leiknum um Samfélagsskjöldinn. Maurizio Sarri telur að hann henti ekki leikstíl sínum.

Nú berast fréttir af því að Drinkwater hafi klessukeyrt bílinn sinn undir áhrifum áfengis.

Drinkwater var í bifreiðinni ásamt ónefndri konu en atvikið átti sér stað aðfaranótt mánudags.

Drinkwater, sem á þrjá landsleiki fyrir England, hefur verið formlega ákærður fyrir ölvunarakstur.
Athugasemdir
banner