Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   fös 11. október 2019 10:32
Elvar Geir Magnússon
Upphitun fyrir landsleikinn á Ölveri - Freyr með töflufund
Icelandair
Tólfan verður í stuði á Ölveri.
Tólfan verður í stuði á Ölveri.
Mynd: Eyþór Árnason
Ísland tekur á móti sjálfum heimsmeisturum Frakka á Laugardalsvellinum í kvöld en leikurinn verður klukkan 18:45.

Stuðningsmenn íslenska liðsins hita upp á Ölveri í Glæsibæ eins og venjan er.

Freyr Alexandersson aðstoðarlandsliðsþjálfari mun þar frumsýna byrjunarliðið og ræða um leikinn.

„Við byrjum að vanda á BK á Grensásveginum, mæting þangað milli 14 og 15. Eftir það förum við á heimavöll Tólfunnar, Ölver í Glæsibæ. Freysi mætir með töflufundinn sívinsæla klukkan 16:45 og eftir það verður haldið í skrúðgöngu niður í Laugardalinn. Mætum bláklædd, mætum með söng og köll á vörum, mætum í stuði og höfum gaman!" segir í viðburði Tólfunnar á Facebook.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner