Fotbolti.net

Leita

Leita í fréttum

Leitaðu í fyrirsögnum, texta eða eftir höfundi. Fyrsta slice notar staðlaðar fréttafærslur úr typed fixtures og heldur leitinni öruggri án backend-háðra SQL fyrirspurna.

Leitarhamur

Dagsetning

Ef ekkert leitarorð er slegið inn notar síðan dagsetninguna sem einfalt fréttasafnsfilter.

Niðurstöður

Leit að "(Staðfest)" í fyrirsögn og texta skilaði 25102 niðurstöðum.

Leitin er nú fixture-backed og leitar eingöngu í stöðluðum fréttum. Leikir/skýrslur og endanleg backend-samningsleit eru enn ókláruð.

Niðurstöður

FRÉTTIR01.09.2025, 09:08

Lamptey orðinn liðsfélagi Alberts (Staðfest)

Bakvörðurinn Tariq Lamptey er orðinn leikmaður Fiorentina. Ítalska félagið kaupir hann frá Brighton fyrir 6 milljónir punda. Lamptey, sem er 24 ára, átti að renna út á samningi í sumar en framlengdi um eitt ár. Nú er hann farinn til Fiorentina á Ítalíu, þar sem hann verður liðsfélagi Alberts Guðmundssonar.

FRÉTTIR01.09.2025, 08:30

John Victor til Nottingham Forest (Staðfest)

Brasilíski markvörðurinn John Victor er genginn til liðs við Nottingham Forest frá Botafogo í heimalandinu. Hann skrifar undir þriggja ára samning.

FRÉTTIR01.09.2025, 08:03

Gæti orðið einn rosalegasti gluggadagur seinni ára

Það stefnir í einhvern rosalegasta gluggadag síðari ára í dag. Fótbolti.net verður á vaktinni í allan dag og mun fylgjast með öllu því helsta. Stærst er það náttúrulega að Alexander Isak verður leikmaður Liverpool. Englandsmeistararnir komust loksins að samkomulagi við Newcastle í gær um 130 milljón punda kaupverð. Isak verður dýrasti leikmaður í sögu ensku úrvalsdeildarinnar.

FRÉTTIR01.09.2025, 07:00

Lék með HK og er nú kominn til Norrköping (Staðfest)

Danski markvörðurinn Christoffer Petersen er genginn til liðs við Norrköping sem leikur í efstu deild í Svíþjóð. Petersen lék með HK síðasta sumar en hann kom við sögu í 11 leikjum í Bestu deildinni. Hann kom til Íslands frá Kolding í Danmörku en hann fór aftur þangað síðasta vetur en er nú kominn til Svíþjóðar.

FRÉTTIR01.09.2025, 06:00

Tomasz Luba tekur við Víkingi Ó. (Staðfest)

Tomasz Luba hefur verið ráðinn þjálfari Víkings Ólafsvíkur en hann tekur formlega við liðinu eftir tímabilið. Hann verður einnig yfirþjálfari Víking/Reynis. Hann tekur við af Brynjari Kristmundssyni sem tilkynnti fyrr í sumar að hann muni hætta þjálfun liðsins eftir tímabiliið.

FRÉTTIR31.08.2025, 13:07

Emmanuel Dennis riftir við Forest (Staðfest)

Nígeríski sóknarmaðurinn Emmanuel Dennis hefur fengið samningi sínum rift hjá enska úrvalsdeildarfélaginu Nottingham Forest, en þetta kemur fram í tilkynningu frá Forest í dag.

FRÉTTIR31.08.2025, 10:11

Andri Lucas til Blackburn (Staðfest)

Andri Lucas Guðjohnsen er genginn í raðir Blackburn Rovers frá belgíska félaginu Gent fyrir um það bil tvær milljónir evra en þetta kemur fram í tilkynningu frá enska félaginu í dag. Samningurinn er til þriggja ára.

FRÉTTIR30.08.2025, 14:28

Andreas Pereira til Palmeiras (Staðfest)

Fulham er búið að selja brasilíska miðjumanninn Andreas Pereira til Palmeiras í Brasilíu en hann átti aðeins eitt ár eftir af samningi við enska úrvalsdeildarfélagið.

FRÉTTIR30.08.2025, 10:46

Nkunku til Milan (Staðfest)

Christopher Nkunku er genginn til liðs við AC Milan frá Chelsea. Milan borgar um 36 milljónir punda fyrir hann. Hann skrifar undir fimm ára samning við ítalska félagið. Chelsea hefur selt leikmenn fyrir um það bil 314 milljónir punda í sumar.

FRÉTTIR30.08.2025, 06:00

Fabio Silva frá Wolves til Dortmund (Staðfest)

Portúgalski framherjinn Fabio Silva er genginn til liðs við Dortmund frá Wolves. Kaupverðið er tæplega 23 milljónir punda. Hann skrifar undir fimm ára samning við þýska félagið.

FRÉTTIR29.08.2025, 20:45

Magassa til West Ham (Staðfest) - „Ekki erfitt að segja já"

Soungoutou Magassa er genginn til liðs við West Ham frá Mónakó. Kaupverðið er rúmlelga 17 milljónir punda. Magassa er varnarsinnaður miðjumaður en hann getur einnig leyst stöðu miðvarðar. Hann er 21 árs gamall og er landsliðsmaður U21 landsliðs Frakklands. <i>„West Ham er mjög stórt félag með langa sögu á Englandi, með marga aðdáendur og mjög stóran leikvang. Það var ekki erfitt að segja já,"</i> sagði Magassa.

FRÉTTIR29.08.2025, 16:19

Xavi Simons í Tottenham (Staðfest)

Tottenham hefur staðfest að hollenski landsliðsmaðurinn Xavi Simons sé genginn í raðir félagsins. Hann kemur frá RB Leipzig í Þýskalandi og kostar 60 milljónir evra. Sú upphæð gæti síðar meira hækkað í 70 milljónir evra.

FRÉTTIR29.08.2025, 15:00

Liverpool lánar ungan miðjumann til Ajax (Staðfest)

Ajax hefur staðfest að félagið hafi fengið miðjumanninn James McConnell á láni frá Liverpool. Á sama tíma og það var tilkynnt, þá sagði Liverpool frá því að leikmaðurinn hefði skrifað undir nýjan samning sem gildir til ársins 2030.

FRÉTTIR29.08.2025, 13:14

Spænskur landsliðsmaður í Crystal Palace (Staðfest)

Crystal Palace hefur staðfest kaup á Yeremy Pino en hann kemur til félagsins frá Villarreal. Palace borgar 21 milljón punda fyrir Pino og gæti sú upphæð hækkað í 26 milljónir punda síðar meir.

FRÉTTIR29.08.2025, 10:19

Sandra María seld til Köln (Staðfest)

Landsliðskonan Sandra María Jessen hefur gengið í raðir þýska úrvalsdeildarfélagsins Köln frá Þór/KA. <i>„Sandra María hefur því spilað sinn síðasta leik fyrir Þór/KA í bili og færir félagið henni hér með bestu þakkir fyrir ómetanlegt framlag til liðsins, félagsins og knattspyrnunnar á Akureyri,"</I> segir í tilkynningu Þórs/KA.

Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.