Fotbolti.net

Leita

Leita í fréttum

Leitaðu í fyrirsögnum, texta eða eftir höfundi. Fyrsta slice notar staðlaðar fréttafærslur úr typed fixtures og heldur leitinni öruggri án backend-háðra SQL fyrirspurna.

Leitarhamur

Dagsetning

Ef ekkert leitarorð er slegið inn notar síðan dagsetninguna sem einfalt fréttasafnsfilter.

Niðurstöður

Leit að "(Staðfest)" í fyrirsögn og texta skilaði 25108 niðurstöðum.

Leitin er nú fixture-backed og leitar eingöngu í stöðluðum fréttum. Leikir/skýrslur og endanleg backend-samningsleit eru enn ókláruð.

Niðurstöður

FRÉTTIR30.07.2025, 23:26

Victor Osimhen til Galatasaray (Staðfest)

Tyrkneska félagið festi kaup á nígeríska framherjanum Victor Osimhen fyrir metfé í kvöld en hann kemur til félagsins frá Napoli. Þúsundir manna tóku á móti Osimhen á flugvellinum sem skrifaði undir langtímasamning.

FRÉTTIR30.07.2025, 17:00

Semedo kveður Wolves (Staðfest)

Portúgalski bakvörðurinn Nelson Semedo hefur ákveðið að kveðja Úlfana eftir að samningur hans rann út. Samningurinn rann út fyrir mánuði síðan en Úlfarnir hafa haldið í þá von að hann myndi endursemja, en svo gerðist ekki.

FRÉTTIR30.07.2025, 14:12

Breiðablik kaupir Sunnu Rún (Staðfest)

Sunna Rún Sigurðardóttir er gengin í raðir Breiðabliks en hún er keypt til Íslandsmeistaranna frá uppeldisfélaginu sínu, ÍA. Fótbolti.net fjallaði um áhuga stórliðanna, Vals og Breiðabliks, í síðustu viku og í dag tilkynnti ÍA um sölu á leikmnaninum. Sunna Rún er fædd árið 2008, hún er unglingalandsliðskona sem spilar á miðjunni. Hún hefur skorað eitt mark í níu leikjum í Lengjudeidinni á þessu tímabili.

FRÉTTIR30.07.2025, 12:14

Andri Fannar keyptur til Tyrklands (Staðfest)

Andri Fannar Baldursson var rétt í þessu kynntur sem nýr leikmaður Kasimpasa í tyrknesku úrvalsdeildinni. Hann er keyptur frá ítalska félaginu Bologna þar sem hann hefur verið frá árinu 2019. Bologna nýtti sér ákvæði í samningi Andra Fannars í síðasta mánuði áður en hann rann út, við það framlengdist samningur hans við félagið um ár til viðbótar og því þurfti að kaupa hann frá Bologna. Miðjumaðurinn skrifar undir þriggja ára samning við tyrkneska félagið. Liðið endaði í 10. sæti deildarinnar í fyrra. Andri lék alls 16 leiki fyrir Bologna á tíma sínum þar. Hann var lánaður í þrígang frá félaginu, fyrst til FCK í Danmörku, svo til NEC Nijmegen í Hollandi og svo til Elfsborg í Svíþjóð þar sem hann var lengst. Hann sneri aftur til Bologna frá Elfsborg í lok síðasta árs, þurfti að fara í aðgerð og var fyrri hluta þessa árs að jafna sig eftir hana.

FRÉTTIR30.07.2025, 09:50

Xhaka til Sunderland (Staðfest)

Sunderland hefur gengið frá kaupum á svissneska miðjumanninum Granit Xhaka, fyrrum leikmanni Arsenal. Xhaka, sem verður 33 ára í september, skrifaði undir þriggja ára samninga við nýliða ensku úrvalsdeildarinnar. Hann var sjö ár hjá Arsenal áður en hann gekk í raðir Bayer Leverkusen 2023. <i>„Ég er mjög stoltur af því að vera hér. Ég var spenntur þegar ég ræddi við félagið og fann kraftinn og hugarfarið sem allt starfsfólk og leikmenn eru með,"</i> segir Xhaka sem mun klæðast treyju númer 34 hjá Sunderland.

FRÉTTIR30.07.2025, 08:19

Luis Díaz til Bayern München (Staðfest)

Bayern München hefur keypt kólumbíska landsliðsmanninn Luis Díaz frá Liverpool fyrir 65,5 milljónir punda. Díaz er 28 ára og hefur skrifað undir fjögurra ára samning við Þýskalandsmeistarana. Liverpool hafði hafnað 58,6 milljóna punda tilboði fyrr í þesum mánuði en tók endurbættu boði og gaf Díaz leyfi til að fara í læknisskoðun.

FRÉTTIR29.07.2025, 16:00

Íslandsvinurinn Asmir Begovic í Leicester (Staðfest)

Íslandsvinurinn Asmir Begovic er ekki á þeim buxunum að hætta strax en hann hefur núna samið við Leicester. Leicester féll úr ensku úrvalsdeildinni á síðustu leiktíð og spilar í Championship-deildinni á komandi tímabili.

FRÉTTIR29.07.2025, 15:44

Pétur Theodór tekur síðasta dansinn með Gróttu (Staðfest)

Pétur Theodór Árnason er mættur aftur í uppeldisfélagið Gróttu og er kominn með leikheimild með liðinu fyrir leikinn gegn Dalvík/Reyni sem fram fer á Dalvík á morgun. Pétur Theodór er mikill markaskorari en hefur verið mjög óheppinn með hnémeiðsli á sínum ferli. Hann lék fyrri hluta tímabilsins með Kríu, venslaliði Gróttu, í 4. deildinni og skoraði sjö mörk í sjö leikjum.

FRÉTTIR29.07.2025, 14:33

Grindavík fær bakvörð með reynslu úr hollensku úrvalsdeildinni (Staðfest)

Grindavík hefur fengið hægri bakvörðinn Terry Lartey Sanniez í sínar raðir. Á Transfermarkt var hann síðast skráður í NEC Nijmegen árið 2023 og ekki með skráð félagaskipti eftir það. Hann hefur hins vegar spilað neðri deildar fótbolta í Amsterdam, eitthvað sem ekki er skráð á Transfermarkt.

FRÉTTIR29.07.2025, 12:30

Joao Felix í Al-Nassr (Staðfest)

Portúgalinn Joao Felix er genginn í raðir Al-Nassr í Sádi-Arabíu. Hann kemur þangað frá Chelsea fyrir 30 milljónir evra. Upphæðin gæti svo hækkað í 50 milljónir evra síðar meir. Samningur Felix við Al-Nassr gildir til ársins 2027.

FRÉTTIR29.07.2025, 11:50

Jóhannes Kristinn í Kolding (Staðfest)

Jóhannes Kristinn Bjarnason er genginn í raðir danska félagsins Kolding og skrifar hann undir samning þar til 2029. Faðir hans, Bjarni Guðjónsson, birtir mynd af Jóhannesi þar sem hann er mættur í æfingafatnað frá Kolding. Á myndinni er hann að skrifa undir samninginn.

FRÉTTIR29.07.2025, 09:49

Víkingur lánar Almo í Njarðvík (Staðfest)

Ali Al-Mosawe hefur verið lánaður frá Víkingi til Njarðvíkur út þetta tímabil. Hann er kominn með leikheimild en Njarðvík leikur gegn HK í Lengjudeildinni í kvöld.

FRÉTTIR29.07.2025, 08:00

Bednarek frá Southampton til Porto (Staðfest)

Jan Bednarek er genginn til liðs við Porto frá Southampton. Bednarek er 29 ára gamall pólskur miðvörður en hann hefur verið í herbúðum Southampton frá 2017. Hann gekk til liðs við félagið frá Lech Poznan.

Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.